26.6.2010 | 18:58
Frí mán og þri... og Vestmannaeyjaferð
Síðustu ár höfum við alltaf gefið frí mánudag og þriðjudag eftir N1 mót og munum einnig gera það í ár. Margir halda áfram að ferðast eftrir Akureyri og einnig er ágætt að hvíla sig eftir leikjatörnina á N1. Samkvæmt æfingatöflu er frí á miðvikudögum og byrjum við því aftur fimmtudaginn 8. júlí.
Þann 11. júlí förum við svo til Vestmannaeyja þar sem við gistum eina nótt og spilum við ÍBV þann 12. Farið verður með Herjólfi fram og til baka og munum við líklega gista í skátaheimilinu í Vestmannaeyjum. Munum við reyna að halda öllum kostnaði við ferðina í lágmarki en inní verðinu verður miði í Herjólf, einhver matur og gisting. Nánar um það síðar.
Ég veit að það er mikið um ferðalög á þessum tíma og er afar mikilvægt að allir þeir sem ekki komast láti vita hér að neðan.
Athugasemdir
Gústaf kemst ekki til Eyja
Gústaf Darrason (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 09:53
Breki J kemst ekki til Vestmannaeyja
Breki J (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 18:19
Gutti kemst ekki til eyja
Guðmundur Björn (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 10:38
Andrés Ísak kemst ekki til Eyja , verður á ferðalagi
Andrés Ísak (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 13:43
Arnar Már og Atli Hrafn komast ekki, verða í sumarbúðum. Verða komnir aftur þriðjudaginn 13. júlí.
Heimir Örn (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 17:05
Finnbogi og Kjartan komast ekki, þeir verða í Vatnaskógi.
María (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 17:09
Gunnar Atli kemst ekki til Eyja, verður á ferðalagi
Gunnar Atli (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 22:21
Ég kemst örugglega ekki á æfingarnar á fimmtudaginn og föstudaginn.
Karvel Ágúst Schram (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 22:30
Guðni Þór kemst ekki til Eyja, er í sumarbúðum. Verður kominn aftur þriðjud. 13. júlí.
Guðni Þór (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 11:45
Guðmundur Andri fer ekki með.
Guðmundur Andri (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 12:14
Magnús Sveinn fer ekki til Vestmanneyja
Magnús Sveinn (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 21:20
Ívar Bergs kemur með til Vestmannaeyja
Ívar Bergs (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 11:55
ég kemst ekki :-(
Einar H (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 12:39
ég kem en hvenær koma upplsýngar um ferðina ? :D
Kalli Kvaran (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 13:38
Ég kemst því miður ekki með til Eyja. Gangi ykkur vel og góða skemmtun. Mbk. Markús
Markús Pálmi (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 13:46
Ég kemst því miður ekki með til Eyja.
Kristinn Hrafn (IP-tala skráð) 8.7.2010 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.