Reglur 5. flokks KR

Reglur leikmanna 5. flokks KR

1.  Leikmenn eru stundvísir, mæta a.m.k. 5 mínútum fyrir æfingar og 5 mínútum fyrir boðaðan tíma í leiki til að þeir séu örugglega mættir á réttum tíma.

2.  Leikmenn eru jákvæðir og í góðu skapi á æfingum og í leikjum því að fótbolti er áhugamál og okkur finnst gaman í fótbolta.
 

3.  Leikmenn leggja sig 100% fram á hverri einustu æfingu og í hverjum einasta leik.

4.  Leikmenn fara í einu og öllu eftir því sem þjálfari segir.  Þegar þjálfari talar hafa leikmenn hljóð og hlusta vel á allt sem hann hefur að segja.

5.  Leikmenn bera virðingu fyrir samherjum sínum, hvort sem er á æfingu, í leik, í skólanum eða annars staðar.  Allir leikmenn flokksins eru félagar innan vallar og utan og hegða sér samkvæmt því.

6.  Leikmann koma fram við dómara og andstæðinga af virðingu.  Leikmenn mótmæla aldrei úrskurði dómara og gera ekki lítið úr andstæðingum.

7.  Leikmenn kunna að sigra og tapa.  Við tökum sigrum með hóflegri gleði og töpum með jafnaðargeði.

8.  Leikmenn ganga vel um íþróttahús og annað svæði KR og hlýða alltaf húsvörðum og öðrum starfsmönnum félagsins.

9.  Leikmenn bera virðingu fyrir KR búningnum og skila honum samanbrotnum í búningatösku eftir leiki.

10.  Leikmenn gera sér grein fyrir að KR er rótgróið félag og þegar þeir klæðast KR búningum eru þeir ekki einungis að spila fyrir sjálfa sig heldur allan þann fjölda fólks sem hefur síðan 1899 lagt sitt af mörkum til að gera KR að því félagi sem það er í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband