Æfingagjöld og æfingaleikur

Í janúar fengu strákarnir skráningarblað frá skrifstofu KR sem þarf að fylla út til að hægt sé að ganga frá æfingagjöldum.  Aðeins hluti af hópnum hefur skilað inn blaðinu og er nú komið að því að allir þurfa að skila, helst á allra næstu dögum.  Ég læt blaðið fylgja með póstinum og er hægt að skila því á æfingu, á skrifstofu KR eða með því að senda það í tölvupósti á martha@kr.is og er það í rauninni fljótlegasta leiðin. Ef það eru einhverjar spurningar um þetta þá er hægt að hringja í Mörthu Sverrisdóttur féhirði KR í síma 510-5313.
 
Á föstudaginn förum við svo í Fífuna í Kópavogi og spilum æfingaleik við Breiðablik.  Við mætum með 6 lið en nánari upplýsingar um mætingartíma og liðskipan verða komnar inná bloggsíðuna í kvöld.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ. Ég sleppti æfingu í dag vegna þess að mér var illt í maganum og er enn smá illt, en mæti örugglega held að það sé pottþétt að ég mæti á mrg

Ari (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 16:17

2 identicon

Eyjólfur er meiddur og komst því ekki á æfingu í dag

Eyjó (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 18:14

3 identicon

fáum við að vita liðin

Jonni (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband