Fundurinn

Fyrir þá sem ekki komust á fundinn í kvöld þá látum við fylgja hér slæðurnar sem farið var yfir. (Skjalið má finna neðst í færslunni)

Munum við einnig senda þær á póstlista foreldra um leið og hann berst okkur. Ef einhverjir hafa skipt um póstfang síðan í fyrra eða jafnvel ekki verið á póstlista þá væri gott að fá að vita af því og við kippum því í liðinn.

Póstfangið okkar er
5flokkurkr@gmail.com


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Foreldrafundur

Miðvikudaginn næstkomandi, þann 24. október verður haldinn foreldrafundur fyrir foreldra og forráðamenn drengja í 5. flokki.  Fundurinn verður haldinn í félagsheimili KR og hefst kl. 20:00 fyrir yngra ár og kl. 21:00 fyrir eldra ár. Á fundinum verður farið yfir stefnur, áherslur og markmið vetrarins auk þess sem mynduð verða foreldraráð flokksins. 

Með bestu kveðju og von um góða mætingu,
Þjálfarar


Myndbönd - æfingar

Hér eftir munu koma reglulega inná síðuna fótboltamyndbönd sem leikmenn eru hvattir til að skoða og spreyta sig á í frítímanum.

Fyrsta myndbandið sem við setjum inn er hreyfing sem er oft kennd við Ferenc Puskás sem lék lengi vel með Real Madrid en hann lék auk þess með landsliðum bæði Ungverja og Spánverja.

Hreyfingin er nokkuð einföld en mjög árangursrík - sé hún gerð hratt og rétt.
Það sem hreyfingin gengur útá er að draga boltann hratt að sér - með vinstri fæti ef boltinn er hægra megin og með hægri fæti sé boltinn vinstra megin.
Þegar leikmaður hefur dregið boltann að sér spyrnir hann honum aftur út með utanverðum fætinum - hratt og í hina áttina.  Hreyfingin myndar þá að lokum V.

Kíkjum svo á myndband af æfingasvæðinu sem skýrir þetta betur:





Það má svo sjá Puskás sjálfan skora eftir að hafa notað hreyfinguna hér og hér.


Að lokum viljum við minna á grunnatriðin.  Sendingar, móttaka og knattrak eru hlutir sem allir geta æft aukalega - nánast hvar sem er og það eina sem þarf er bolti, veggur og garður, gervigras eða skólalóð.

Nýir æfingatímar á miðvikudögum

Breyting á æfingatöflu 

Gerð hefur verið smávægileg breyting á æfingatöflunni sem gefinn var fyrir veturinn.
Breytingin felst í því að á miðvikudögum mætir allur flokkurinn kl. 15:30 í stað þess
að yngra árið mæti 15:30 og það eldra 16:30.
 

Ástæðan fyrir breytingunni er sú að við höfum allan gervigrasvöllinn til umráða og
með þessu fyrirkomulagi getum við æft í 90-120 mínútur í stað þeirra 60 mínútna
sem upphaflega var reiknað með.
 

Hver æfing verður því væntanlega u.þ.b. 100 mínútur og ættu strákarnir þá að vera
búnir um kl. 17:10 og aldrei seinna en 17:30.
 

Æfingarnar á mánudögum og laugardögum haldast óbreyttar.
 

Kveðja,
Þjálfarar 



5. Flokkur karla



Æfingar veturinn 2007-2008
  
MánudagurKl. 15:30 - 16:20 B salur (yngra ár)
 Kl. 16:20 - 17:10 B salur (eldra ár)
MiðvikudagurKl. 15:30 - 17:30 Gervigras (allir)
LaugardagurKl. 12:30 - 14:00 Gervigras (allir)

Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Æfingar að hefjast


5. Flokkur karla
Æfingar veturinn 2007-2008

Mánudagur
Kl. 15:30 - 16:20 B salur (yngra ár)
 Kl. 16:20 - 17:10 B salur (eldra ár)

Miðvikudagur
Kl. 15:30 - 16:30 Gervigras (yngra ár)
 Kl. 16:30 - 17:30 Gervigras (eldra ár)
Laugardagur
Kl. 12:30 - 14:00 Gervigras (allir)


Tölvupóstfang flokksins er 5flokkurkr@gmail.com

Einnig er hægt að ná í þjálfara símleiðis í nr. :

Guðmundur: 8999558
Halldór: 8699433

Æfingataflan tekur gildi frá og með mánudeginum 8. október.

Kveðja,

Þjálfarar


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband