Heimaverkefni

Nú er orðið svolítið síðan við settum inn myndbandið af V-hreyfingunni hans Puskas og eru allir væntanlega orðnir snillingar í því.  Annars er enn hægt að skoða myndbandið hérna.

Nú er það hinsvegar önnur og enn meira krefjandi hreyfing sem þið getið spreytt ykkur á utan æfinga.  Það er brasilískur kappi, Rivelino sem fyrst kom fram á sjónarsviðið með þessa hreyfingu fyrir meira en 40 árum en margir tengja hana þó frekar við annan Brasilíumann sem er að spila í dag.

Hér að neðan koma svo tvö myndbönd af Ronaldinho að gera hreyfinguna sem oft er kölluð Flip-Flap og felst í því að nota utanfótarsnertingu til að færa boltann aðeins til hliðar en kippa honum svo snöggt með sér innanfótar í hina áttina. Mikilvægt er að beygja sig vel í hnjánum og hreyfa fæturnar hratt.



Hér er svo smá syrpa þar sem má sjá fleiri nota hreyfinguna til að plata varnarmenn uppúr skónum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kemst ekki á æfingu daginn 27 feb útaf ég er að fara í afmæli 

eyjó (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 15:19

2 identicon

Komst ekki á æfingu 27 Feb. Var í jarðarför hjá afa.

Ari (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 17:49

3 identicon

þetta er albert herna eg er veikur þannig kannski kemst eg ekki a æfingu laugardaginn 1 mars oki bæb

albert (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 19:59

4 identicon

verður æfing á eftir

Svanberg (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 08:40

5 identicon

Er að fara til Ausurríkis 1.mars og kem eftir viku!

K.v Tómas

Tómas (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 09:53

6 identicon

Má ekki fara á æfingu á eftir. Var hjá tannlækni í gær og voru 3 tennur teknar úr mér

Bjarni (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 10:08

7 identicon

hæ er veikur mæti ekki á æfingu 3 mars í dag

sindri geir veikur (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 14:13

8 identicon

ég komst ekki á æfingu í dag ég er smá tognaður í lærinu

eyjó (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband